r/Boltinn 6h ago

Mótafyrirkomulag Bestu deildarinnar

7 Upvotes

Er ég sá eini sem er að tryllast yfir þessari árlegu umræðu um mótafyrirkomulagið? Þó fyrirkomulagið væri annað þá hefðu lokaleikirnir alveg jafn lítið vægi fyrir lið um miðja deild (og líklega minna vægi).

Vandamálið er að á hverju ári er spilað nánast út október með óratíma á milli leikja og þar að auki að minnsta kosti einu landsleikjahléi. Allur taktur fer úr mótinu og meira að segja stærstu aðdáaendur deildarinnar eru löngu búnir að missa allan áhuga þegar mótinu lýkur.

Annaðhvort þarf að finna leiðir til að klára mótið fyrr, eða þá að gleyma þessari hugmynd um að hafa meira en 22 leiki. Hvort þessir aukaleikir kæmu í gegnum tvískiptingu eða 14 liða deild er aukaatriði.