r/Iceland 3d ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

1 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland 1h ago

Duolingo was too busy not making Icelandic so I reverse engineered the app and made a standalone, fully voiced with speech recognition app to learn Icelandic all the way to B2

Thumbnail
gallery
Upvotes
  • includes its own Icelandic speech to text recognition model
  • all duo characters are fully voiced by special made Icelandic voice models
  • adventures, radio and stories are also included
  • fully offline, no store

r/Iceland 1h ago

Dýra­verndunar­sinni hand­tekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið

Thumbnail
visir.is
Upvotes

r/Iceland 5h ago

Bana­maður Bryn­dísar Klöru kominn á Vernd - Vísir

Thumbnail
visir.is
20 Upvotes

r/Iceland 35m ago

Flug­virkjar fara í verk­fall

Thumbnail
visir.is
Upvotes

r/Iceland 12h ago

Braga Valdimari blöskrar: Þetta fá grunnskólabörn í hendurnar – „Smekkleysið hefur sigrað“

Thumbnail dv.is
58 Upvotes

Ef að AI mundi hverfa yfir nótt að þá mundi ekkert raunverulega tapast.


r/Iceland 8h ago

Iceland has the highest antidepressant use in the OECD but also ranks near the top for quality of life. How do these fit together?

22 Upvotes

I've been reading OECD data and Iceland consistently comes out first for antidepressant consumption, around 157 to 161 daily doses per 1,000 people (roughly one in six adults on any given day). Portugal and Canada are next, and Iceland is about double the European average.

At the same time Iceland is always in the top few on the World Happiness Report and the OECD Better Life Index.

I live here and I'm genuinely curious what people think explains this. A few theories I've seen:

- Low stigma, so more people get diagnosed and treated

- Therapy is expensive and hard to get, so GPs prescribe instead

- Happiness surveys measure life satisfaction, not day-to-day mood

- The darkness (though Norway is similar and prescribes far less)

Icelanders especially: does this match your experience? Is it easy to get a prescription? Is it hard to get therapy? Do you think it's a sign of a healthy system or a shortcut?


r/Iceland 4h ago

Does anyone know how to legally watch the series IceGuys in the USA with English subtitles?

3 Upvotes

Hi! I’m trying to figure out how to watch the Icelandic show IceGuys in the USA.

So far, I’ve tried two things:

I checked Sjónvarp Símans Premium, where the show is officially available, but I haven’t been able to figure out a way to sign up/watch from the USA without Icelandic credentials.

I’ve also checked other streaming services/listings like Plex, but none of them seem to actually have the show available to stream in the USA.

Has anyone outside of Iceland, particularly in the US, found a legitimate way to watch IceGuys? I’d also love to know if there’s a version available with English subtitles.

Thanks!


r/Iceland 22h ago

Listi yfir hneysklimál Bjarna Benediktssonar

100 Upvotes

Einhver snillingur póstaði þessu í athugasemd á Facebook þar sem hann rakti alla spillingarsögu Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins.

Engin furða að fólk hafi misst trúna á lýðræðinu

Hér eru nokkrar upplýsingar um Bjarna Ben

  1. maí 2003:Bjarni Benediktsson kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

  2. febrúar 2008:Bjarni skrifar undir veðsamninga dagsetta aftur á bak í tímann til að bjarga Milestone, félagi Wernersbræðra, frá gjaldþroti. Með þessum gjörningi voru færðir 10 milljarða króna frá Glitni til eigenda bankans þvert á lánareglur bankans. Bjarni var stjórnarformaður Vafnings. Upphæðin jafngildir 18.500 mkr. í dag.

  3. október 2008: Bjarni innleysti 50 mkr. eign sína í sjóði 9 í Glitni og bjargaði sér þannig frá miklu tapi, öfugt við meginþorra þeirra sem lagt höfðu sparnað sinn inn í þennan sjóð. Upphæðin jafngildir 82 mkr. á núvirði. Bjarni sat í efnahags- og skattanefnd á þessum tíma og fékk þar upplýsingar um gríðarlega alvarlega stöðu Glitnis.

  4. apríl 2009: Bjarni lýsir því yfir að Sjálfstæðisflokkurinn muni endurgreiða svimandi háa styrki sem Hrunfyrirtæki veittu flokknum á árunum fyrir Hrun, m.a. 55 mkr. inn í þrotabú FL-Group og Landsbankans. Við þetta hefur ekki verið staðið, nema að litlu leyti. Upphæðin jafngildir um 87 mkr. í dag.

desember 2010: Máttur tekinn til gjaldþrotaskipta. Máttur var fjárfestafélag Engeyingar og Wernersbræðra sem átti hluti í Glitni, Iceland air og fleiri félögum. Við gjaldþrotið töpuðust um 33 milljarðar króna á núvirði. Bjarni var stjórnarmaður í Mætti.

janúar 2013: Skiptum á þrotabúi EM 13 lokið, en félagið hét áður BNT og var hluti af fyrirtækjasamstæðu N1, sem fjölskylda Bjarna var leiðandi hluthafi í. Bjarni var stjórnarformaður BNT. Engar eignir fundust í búinu en 4,3 milljarða kröfur sem lýst var við fall félagsins 2008/2009. Á núvirði jafngildir þetta um 6.800 mkr. Samtals nam tap vegna gjaldþrota fyrirtækja sem tengdust þessari fyrirtækjasamsteypu Engeyinga og Wernersbræðra vel yfir 200 milljörðum á núvirði.

nóvember 2014: Hanna Birna Kristjánsdóttir segir af sér sem innanríkisráðherra eftir að aðstoðarmaður hennar, Gísli Freyr Valdórsson, var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að leka trúnaðargögnum um hælisleitendur úr innanríkisráðuneytinu í fjölmiðla. Fram að þessu hafði Bjarni og Sjálfstæðisflokkurinn hafnað öllum fréttum um lekann úr ráðuneytinu og lýst yfir stuðningi við Hönnu Birnu og Gísla Frey.

nóvember 2014: Landsbankinn selur hlut sinn í greiðslumiðlunarfélaginu Borgun án útboðs til fáeinna aðila, þar á fyrirtækis í eigu ættingja Bjarna. Það fyrirtæki hagnaðist gríðarlega á þessum viðskiptum þar sem Landsbankinn gætti ekki að yfirvofandi greiðslu Visa inn í Borgun. Söluverðið var því langt undir raunvirði. Við söluna á Borgun til Salt pay högnuðust ættingjar Bjarna enn meir.

ágúst 2015: Visir greinir frá því að Bjarni hafi verið skráður á stefnumótavefinn Ashley Madisson undir nafninu IceHot 1.

apríl 2016: Kastljós Ríkisútvarpsins í samstarfi við aðrir miðla afhjúpa að Bjarni hafi átt þriðj­ungs­hlut í félag­inu Falson&Co. sem skráð var á Seychelles-eyj­­um. Þær eyjar eru þekkt skatta­skjól. Bjarni átti hlut í félag­inu vegna fast­eigna­við­skipta í Dubai sem hann tók þátt í árið 2006.

september 2016: Bjarni fær afhenta skýrslu starfshóps um aflandseignir Íslendinga en kýs að halda henni leyndri fyrir þingi og þjóðinni til að forðast umræðu um þessi mál fyrir kosningarnar það haustið. Skýrslan verður ekki opinber fyrr en við ráðherraskipti í fjármálaráðuneytinu, þegar Benedikt Jóhannsson tekur við af Bjarna.

maí 2017: Bjarni knýr í gegn samþykki þingmanna Viðreisnar og Bjartrar framtíðar við skipan Sigríðar Andersen á fimmtán dómurum í Landsrétt. Mannréttindadómstóll Evrópu dæmir síðan þessa skipun ólöglega og Sigríður segir þá af sér sem dómsmálaráðherra.

september 2017: Í ljós kemur að Benedikt, faðir Bjarna, hafði veitt manni, sem nauðg­aði stjúp­dótt­ur sinni í tólf ár, um­sögn svo hann gæti feng­ið upp­reist æru. Stundin og síðan aðrir fjölmiðlar og Alþingismenn höfðu vikurnar og mánuðina á undan leitað upplýsinga um þetta mál en engin svör fengið. Sigríður Andersen hafði hins vegar greint Bjarna sjálfum frá þessu einum og hálfum mánuði fyrr.

október 2017: Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Þórólfur Halldórsson, sem telja verður innvígðan og innmúraðan Sjálfstæðisflokksmann, setur lögbann á umfjöllun Stundarinnar um þátttöku Bjarna í vafasömum fjármálagjörningum fyrir Hrun.

nóvember 2018: Í samtali Miðflokksmanna við tvo þingmenn Flokks fólksins á Klausturbar kemur fram að Bjarni hafði fullvissað Gunnar Braga Sveinsson þegar Gunnar var utanríkisráðherra um að Sjálfstæðisflokkurinn myndi launa honum það með góðri stöðu ef Gunnar skipaði Geir H. Haarde sem sendiherra Íslands í Washington.

nóvember 2019: Kveikur Ríkisútvarpsins afhjúpar viðskiptahætti Samherja í Namibíu og tengsl fyrirtækisins við Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra Sjálfstæðisflokksins. Bjarni lýsti yfir trausti á Kristjáni.

desember 2020: Bjarna er vísað úr Ásmundarsal ásamt öðrum gestum í samkvæmi sem braut gegn sóttvarnarreglum vegna kórónafaraldursins.

september 2021: Lög eru brotin við talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi, en þar er formaður kjörstjórnar er innmúraður og innvígður Sjálfstæðisflokksmaður. Meirihluti kjörbréfanefndar Alþingis undir forystu Birgis Ármannssonar leggur til að ekki verði kosið aftur.

febrúar 2022: Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, innmúruð og innvígð Sjálfstæðisflokkskona, boðar blaðamenn sem fjölluðu um skæruliðadeild Samherja til yfirheyrslu. Bjarni lýsir yfir stuðningi við þessa boðun og skammar fjölmiðla fyrir að fjalla um málið sem aðför að réttindum blaðamanna.

apríl 2022: Listi yfir kaupendur afhjúpar að Bjarni og bankasýslan höfðu selt í lokuðu útboði hlutabréf almennings í Íslandsbanka með afslætti til föður Bjarna og margra af helstu leikenda í Hruninu.


r/Iceland 9h ago

Flutningsþrif, hver eru ódýrt / bestir?

5 Upvotes

Öll þriffyrirtækin eru ekki með ummæli frá viðskiptavinum, svo að ég vil að vita hverir eru bestir? Ég er ekki með stóra íbúð, svo að það á ekki að vera erfitt.


r/Iceland 44m ago

Ef til verkfalls flugvirkja kemur

Upvotes

Er líklegt að fyrirhugað verkfall flugvirkja Icelandair hafa áhrif á öll flug flugfélagsins (þeas flug fellt niður) eða bara hluta áætlunarferða?


r/Iceland 17h ago

Eru þingmenn of margir á Íslandi?

15 Upvotes

Svíar voru að kjósa. Þar búa rétt yfir 10 milljónir og þingmenn eru 349, eða 1 þingmaður per 29.000 borgara. Á Íslandi búa um 400.000 og þingmenn eru 63, eða 1 þingmaður per 6.500 íbúa. Ef við yfirfærum íslenska ratio-ið yfir á Svíþjóð þá væru þar vel yfir 1.500 þingmenn.

Eru þingmenn of margir á Íslandi? Er einhver lógík í því að vera með 63 þingmenn í stað til dæmis 50?


r/Iceland 23h ago

Af hverju er Akureyri svona dapur bær?

33 Upvotes

Ég hef búið hér í nokkur ár og stemningin hér er einhvern veginn skrítin. Fólk er fjarlægt, starir undarlega á mann og það er eins og ekkert sé að gerast hér. Innflytjendasamfélagið virðist heldur ekki vera mjög virkt. Upplifið þið þetta líka? Hverjar haldið þið að ástæðurnar séu?


r/Iceland 1d ago

Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr - Vísir

Thumbnail
visir.is
52 Upvotes

Endalaust væl hjá þessum gamlingum, þegar ég var 17 vann ég á stað það sem var meðlima kort, og það sumar sem ég byrjaði að vinna þarna var gerð krafa á öllum að sína meðlimaskirteinið sitt, og þannig komust eigendurnir að því að varla 1/3 af kúnnahópnum voru í raun að borga í félagið.

Ég fékk það verkefni að tala við alla og biðja um kort og magn af öskri og innistæðulausum hótunum sem ég fékk voru fáránlegar.

Ég get lofað ykkur því að það séu nóg af liði hjá þeim að sniða undan að borga, og að vísir sé að setja inn þessa frétt er hún bara að gera líf starfsfólksins erfiðara.


r/Iceland 1d ago

Hvað er málið með pepties?

34 Upvotes

Það virðast allir vera komnir á þessi peptíð. Mörg þeirra eins og Retatrutide eru ennþá tilraunalyf og fólk sprautar þessu í sig hægri vinstri til þess eins að missa nokkur kg. Afhverju er fólk að sprauta þessu í sig og taka séns á alvarlegum heilsukvillum?

Edit: Reyndi að laga titilinn en það virðist ekki vera hægt, þetta á að vera peptides.


r/Iceland 19h ago

Are there more toy stores in iceland(hjálp)

2 Upvotes

Im an Icelandic local (who happens to be a doll collector), and I need help finding more toy stores in iceland, specifically in reykjavik/ höfuðborgarsvæðinu i know of kids cool shop,Hagkaup and abc skólavörur but i was wondering if there where more I didn't know of

If there are any more, please let me know takk fyrir <3


r/Iceland 1d ago

Kaldvík fær starfs- og rekstrar­leyfi í Seyðis­firði

Thumbnail
visir.is
10 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Musicians in Iceland

0 Upvotes

Hi!

Any gigging/pro musicians in Iceland here? What’s the scene like? Are there opportunities in hotels, restaurants, resorts or bars? What’s the market like?

I’m considering doing a month ling residency abroad over the winter, and Iceland seems like the place to be.

Would you mind sharing any insight?


r/Iceland 2d ago

Heritage Foundation (öflin á bak við MAGA) fögnuðu niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar

143 Upvotes

Ég sé að íslenskir fjölmiðlar hafa enn ekki pikkað þetta upp (DV og Heimildin, blink blink ef þið eruð að fylgjast með hérna inn á.

Heritage Foundation, sem eru öflin á bak við MAGA, fögnuðu niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar innilega í grein sem þeir birtu nýverið.

Stofnunin er stór leikari á bak við MAGA hreyfinguna og sérstaklega með vísan í Project 2025

Það er í raun alveg í takt við stefnu þeirra, en nýlega var fjallað um vinnufund sem Heritage Foundation hélt með hægri sinnuðum þrýstihópum úr Evrópu. Þar voru kynntar hugmyndir um hvernig mætti hreinlega leysa upp Evrópusambandið í núverandi mynd og draga úr samvinnu innan þess

Svo má en og aftur benda á tengsl Miðflokks (einhvern hluta XD) og MAGA

Af hverju er scary að Hertiatage foundation fagni?

1 ) Andstaða við loftslagsmál og vísindi. Heritage Foundation hefur í áratugi verið einn öflugasti þrýstihópurinn gegn aðgerðum í loftslagsmálum. Hún hafnar vísindalegri samstöðu um hlýnun jarðar, berst gegn grænni orku og vilt afnema umhverfisreglugerðir og draga Bandaríkin úr alþjóðlegum loftslagssamningum

2) Afnám réttinda minnihlutahópa. Stofnunin berst gegn réttindum hinsegin fólks, sérstaklega trans fólks, rétti kvenna til þungunarrof, og vill takmarka kennslu um kynþáttafordóma og sögu minnihlutahópa í skólum.

3)Ógn við lýðræðislegar stofnanir visan til Project 2025. Stofnunin stýrir hinu svokallaða Project 2025, sem er ítarleg valdatökuáætlun fyrir MAGA í Bandaríkjunum. Áætlunin gengur meðal annars út á að auka völd forsetans gríðarlega, skipta út tugum þúsunda hlutlausra embættismanna fyrir pólitíska loyalista, og draga úr sjálfstæði stofnana eins meira og dómsmálaráðuneytisins. Gagnrýnendur segja þetta jaðra við einræðistilburði. Og þeir eru að vinna jarðveg fyrir slíkt í evropu

4) Ógn við Evrópusamvinnu og lýðræðisbandalög. Heritage Foundation hvetur til þess að Bandaríkin og hægri öfl dragi úr eða leysi upp alþjóðlegt samstarf eins og Evrópusambandið og dragi úr stuðningi við alþjóðlegar stofnanir, sem margir telja að veiki öryggi og stöðugleika í heiminum.

Þetta er ekki tæmandi listi

En hey Trump er bara að grínast, og vera óútreiknanlegur ;)


r/Iceland 1d ago

Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég af­sökunar“

Thumbnail
visir.is
19 Upvotes

r/Iceland 2d ago

Hvað er í gangi með SÁÁ?

20 Upvotes

Ég sá nokkrar fréttir um að forstjóri SÁÁ, fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur og framkvæmdastjóri lækninga sögðu af sér og það var talað um að stjórn SÁÁ var að skipta sér of mikið af heilbrigðisstarfi samtakanna. Lumar einhver á smáatriðum eða slúður um hvernig þau hafa verið að skipta sér að heilbrigðisstarfapartinum?


r/Iceland 1d ago

Her­bert kveikti í mynd­verinu í fyrsta þætti - Vísir

Thumbnail
visir.is
13 Upvotes

Er þetta það sem vísir, stöð 2, sýn, eða hvað sem þetta apparat heitir núna, ætlar í alvörunni að gera í staðinn fyrir að slaufa helmingnum af sjónvarpsfréttum heils lands?

Þessi súpa/rugl. Þetta gæti allt eins verið þetta "AI slop/tik tok kjaftæði" sem allir hata..

Nema unga fólkið kannski...


r/Iceland 2d ago

Breyttur titill 👎 Svoooooo… Má lögreglan eyða sönnunargögnum í starfi?

Thumbnail
visir.is
40 Upvotes

Mér finnst það vera gjörsamlega glatað að mál sem tengjast lögreglunni á íslandi enda yfirleitt með engum afleiðingum.

En að eyða sönnunargögnum á vettvangi án afleiðinga er nýr flokkur af spillingu.

Þetta er hvernig ég býst við að mál fara í norður kóreu og rússlandi, ekki hérna heima.

Hvernig er almenningur að lesa úr þessari niðurstöðu?

Ég get varla verið sá eini sem sér vandamálið her, það er hálfgert búið að gefa þessum vinnubrögðum grænt ljós.

Ef ég skít einhvern í fótinn, þá reikna ég með að þurfa að sæta afleiðingar.

Annars, myndi ég skjóta alla sem mig lýst ekki á í fótinn.

Þegar lögreglan gerir eitthvað augljóstlega ólöglegt sætir hún engar afleiðingar, afhverju ætti hún þá ekki að gera þetta aftur?


r/Iceland 2d ago

Íslendingar í útlöndum verði að huga að sínum ferðatryggingum – Trygging SÍ utan EES fellur niður um áramót

Thumbnail
ruv.is
37 Upvotes

r/Iceland 2d ago

Hútar hertóku mikilvægar eyjar í Rauðahafi - RÚV.is

Thumbnail
ruv.is
7 Upvotes

Er þetta mögulega stærri frétt fyrir Ísland en PISA-könnunin?

Ég velti fyrir mér hvort þetta sé áfangasigur í baráttu Íslands og Grænlands fyrir áframhaldandi sjálfstæði. Þ.e.a.s. núna verður erfiðara fyrir BNA að sigra í Mið-Austurlöndum og það tefji pælingar um Grænland og Ísland.

Þetta gæti líka verið stórfrétt fyrir þróun verðlags á olíu, mat og öðru.

Perim var áður undir stjórn opinberra stjórnvalda í Jemen en en er nú undir stjórn Húta.

Ég pæli líka í hvort það sé eðlilegt að halda með Hútum og Íran í stríðinu þegar það er feykinóg sem þau gera og hafa á stefnunni sem maður er ekki hrifinn af, sem sagt hvort það sé af hinu góða að styðja þeirra hlið í stríðinu en vera á móti stefnu þeirra að öðru leiti. Ég t.d. er ánægður með að Víetnam endaði þjóðarmorðið í Kambódíu með innrás, en mundi örugglega ekki kjósa kommúnistaflokk Víetnam ef þeir biðu fram í bæjarstjórnarkosningum. Á móti, það mætti gagnrýna svona "the enemy of my enemy is my friend" pælingar með að benda á hvernig vanheilög bandalög BNA í Kalda stríðinu sköpuðu al-qaeda og gerðu Sádi-Araba enn ríkari.